Ég hef aðeins verið að hugsa um af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru.
Af hverju núna, þegar vestræn menning hefur þróast þannig að meirihluti fólks hefur kost á því að öðlast menntun á einhverju stigi,
-Ég held ég fari ekki rangt með staðreyndir að fullyrða að vestrænt þjóðfélag krefjist að lágmarki 8-10 ára í skóla einhverskonar-
að ennþá eru háð stríð í nafni trúarbragða, að ennþá í löndum nálægt okkur drepa menn aðra vegna þess að þeir eru af rangri trú?
að trúarfélög séu ríkisstyrkt
að skólafólk sé ennþá skylt að læra um trú eins og það sé heilagur sannleikur
Í Bretlandi eru alltaf læti milli katólskra og mótmælenda þegar annar flokkurinn fer í einhverja skrúðgöngu, hvert einasta ár er þetta í fréttunum.
Í Ísrael er mönnum slátrað á vís, hvort sem það eru palestínsk hryðjuverka samtök eða Ísraelsk hryðjuverkasamtök sem auðvitað fá ekki umfjöllun sem slík vegna sterks samband við bandaríkin í raun vestræna fjölmiðla.
Sjálfur George Bush vildi meina að Guð hefði hafi verið með í ráðum þegar hann réðst inn í olíulöndin…
Það er nú samt ekki ætlun mín að byrja að tala um stríð í heiminum þó það sé eflaust mál sem er mörgum í huga,
ég ætlaði að tala um trú…
Við eigum að teljast menntað fólk, við lærum um vísindi og við lærum gagnrýna hugsun… að velja og hafna hugmyndum á þeim grunni að þær eigi sér enga stoð í raunveruleikanum…. Við krefjumst sannana í nánast öllu því sem ákvarðanir koma við.
Þú kaupir ekki vöru nema þú vitir eða hafir nokkuð góða hugmynd um að hún virki, ekki færðu rétt fyrir að setja fram setningu nema sönnun fylgi.
Af hverju þá trúir fólk svona heitt enn þann dag í dag?
Einhver vitur maður sagði að vísindin hefðu gert meira fyrir vestrænt þjóðfélag á 100 árum en kirkjan á 2000 árum.. ekki svo galið það, mér sýnist meira vit vera í vísindunum.
Ég er ekki að segja að trú sé slæm, enda hefur kirkjan sýnt fram á það að hægt er að hagnast mikið á henni og stjórnendur til forna notuðu hana sem múgsefjun, en þegar fólk er farið að taka þetta svo bókstaflega að það ákveður að drepa aðra vegna þess að þeir fari til helvítis hvorteðer eða hver svo sem ástæðan er…. þegar t.d. í Ameríku vilja bókstafstrúarmenn banna að kenna um þróunnarkenningu Darwins vegna þess að það stangist á við það sem Biblían segir… þá finnst mér tími til að staldra við aðeins og líta í kringum sig.
Mér finnst ástandið orðið slæmt þegar fólk er farið að taka órökréttar ákvarðanir vegna þess að það stendur í einhverri skáldsögu sem var skrifuð fyrir tæplega tvö þúsund árum.
Mér finnst asnalegt að fólk kaupi ennþá það sem stendur í biblíunni þó það sé vitað mál að kirkjan hafi ritskoðað gripinn áður en hann var gefinn út.
Mér finnst reyndar líka asnalegt að fara í stríð í skjóli trúar.. þegar það er miklu auðveldara að finna rökrétta ástæðu til að fara í stríð á vísindalegum grunni.. það er kannski þá bara vegna þess að fáfræði í heiminum í dag er slík að menn trúa ennþá hverju einasta orði biblíunnar.
Mamma sagði einhverntíman að ég hefði enga empatíu.. ég get ekki sett mig í spor þeirra sem dóu út í heimi eða lentu í einhverjum hrakförum þegar ég þekki það ekki, þ.e.a.s ég skil en ég finn ekki einhvernveginn.
Ég hef alltaf verið með darwinisma frekar en einhverju öðru, natural selection.. sem hefur þó breyst kannski milli ára frá þeim sterkasta yfir í þann gáfaðasta.. ég veit það ekki alveg en allavega.. ef eitthvað hræðilegt gerist þá gerist það og ef við getum einhvern ávinning haft af því að hjálpa þá ættum við kannski að gera það.
Ég hef stundum pælt í því af hverju íslensk stjórnvöld eru að henda fullt af pening í fátæk lönd út í heimi þegar það eru alveg nógu mörg vandamál hérna heima… t.d. vegir úti á landi eða bara einstæðar mæður hérna eða hvað sem er, eitthvað sem er miklu nær okkur og í raun skattpeningurinn ætti að fara í að mínu mati.
Ég var líka að hugsa um það af hverju fólk gefur til góðra málefna… og ég komst að þeirri niðurstöðu að ég held að fólk geri aðeins góða hluti af einhverju formi eigingirni/sjálfselsku. Þetta hljómar illa en er það ekkert endilega, þ.e.a.s ég geri eitthvað fyrir einhvern sem er bágstaddur og mér líður vel við að gera það, friða “sálina” þ.a.l hafa báðir aðilað hagnast á einhvern hátt af þessu. svo auðvitað gefa ábyggilega rík fyrirtæki fult af pening til svona góðra málefna uppá auglýsingu sem er annar handleggur en ég vildi bara koma þessu frá mér.
Það var svosem ekki mikið vit í þessum pistli langaði bara að koma því frá mér hvað ég er að hugsa um akkúrat núna svo ég þyrfti ekki að rifja það upp seinna og muna ekkert hvernig ég hugsaði um hlutina á þeim tíma sem ég spekúleraði í hlutunum.
Ég er líka á móti því að fólk hafi skoðanir á hlutunum, en það er bara mín skoðun og þ.a.l er málið dautt.
Björn for president of the world. takk fyrir og gleðilega páska